Er verslunin tilbúin fyrir Black Friday?
Allt fyrir tilboðsdaga, pökkun og sendingar

Er verslunin tilbúin fyrir Black Friday?

Allt fyrir tilboðsdaga, pökkun og sendingar

Black Friday, Cyber Monday og jólaverslunin eru annasamir tímar hjá verslunum og vefverslunum. Þegar salan eykst skiptir máli að tilboðsmerkingar, pökkun og sendingar gangi hratt og örugglega fyrir sig.

Með réttum vörum og góðum undirbúningi er hægt að einfalda afgreiðsluna, spara tíma og halda góðu skipulagi þegar mest á reynir.

Merkibyssur og verðmiðar

Merkibyssur auðvelda verðmerkingar og breytingar á verði. Þær henta vel fyrir daglegar verðmerkingar í verslunum og þegar undirbúa þarf útsölur og tilboðsdaga.

Festibyssur og festingar

Festibyssur eru hentugar til að festa verðmiða og vörumerkingar á fatnað og aðrar textílvörur. Hjá PMT fást einnig festingar og fylgihlutir fyrir mismunandi þarfir.

Afsláttarlímmiðar

Gerðu tilboðin sýnileg! Afsláttarlímmiðar auðvelda að merkja vörur á útsölu og vekja athygli á lækkuðu verði. Hentug lausn fyrir verslanir sem vilja undirbúa Black Friday og aðra tilboðsdaga.

Vefverslunarpokar

Hentugir pokar fyrir pökkun og sendingar á vörum úr vefverslunum. Einföld og þægileg lausn þegar afgreiða þarf margar pantanir.

Thermal prentarar og hitamiðar

Með thermal prentara er auðvelt að prenta sendingamiða eftir þörfum. Réttir hitamiðar tryggja skýrar merkingar og auðvelda afgreiðslu sendinga.

Glær umslög fyrir sendingar

Sjálflímandi glær umslög sem festast utan á sendingar og halda fylgiskjölum, reikningum eða öðrum upplýsingum á sínum stað.

Skilamiðar

Skilamiðar auðvelda vöruskil og gera viðskiptavinum einfaldara að skipta eða skila gjöfum. Hjá PMT fást bæði staðlaðir skilamiðar og sérprentaðir skilamiðar með merki fyrirtækisins.

Vertu tilbúin fyrir mesta söluálag ársins

Góður undirbúningur skiptir máli þegar viðskiptavinum og pöntunum fjölgar. Með nægum birgðum af afsláttarlímmiðum, pökkunarvörum, hitamiðum og skilamiðum verður afgreiðslan einfaldari og skilvirkari.

Hjá PMT finnur þú fjölbreyttar lausnir fyrir verslanir og vefverslanir, hvort sem um er að ræða merkingar á tilboðsvörum, pökkun, sendingar eða vöruskil.

Skoðaðu úrvalið í vefverslun PMT og undirbúðu annasömustu söludaga ársins.

Your Dynamic Snippet will be displayed here... This message is displayed because you did not provided both a filter and a template to use.